Helber sannleikur

Gerðan

12.01.2007 21:14:33 / asgebjar

Happy New Year og allt það

Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta í alsherjargleðina hjá Guðbrands :haha: Svo styttist óðum í Risa Partýið hjá mér.... vó hvað nágrannarnir eiga eftir að vera ósáttir enda á ég von á því að íbúðin verði troðfull af skemmtilegu fólki og gott ef svalirnar verða ekki bara líka troðfullar, samt bannað að stökkva af þeim, er sko á 3.ju hæð, ekki gott mál fyrir stökkvara.  Nú ég segi bara áfram Folar og SMS.

Kveðja

Twister


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 21:30:56 / asgebjar

Gleðlileg Jól!!!

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla!!!

Kveðja úr Keflavíkinni


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 20:28:45 / asgebjar

Nýjasta nýtt

Allt að gerast á markaðnum.  Þóra búin að selja íbúðina.  Harpa búin að selja bílinn.  Anna Sigga búin að flytja í nýja íbúð.  Eyþór búin að kaupa nýja íbúð og flytja í hana.  Nú Einsi bró og Stella kanski að kaupa íbúð... það kemur betur í ljós á morgun.  Það er agalegt þegar fólk fer að herma eftir MÉR ;););) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 19:43:45 / asgebjar

Jalla jalla

Búin að festa kaup á íbúð í hinni frábæru Söööööönnyyyyyyy Keeeeeeeef!!!! Ég er sem sagt orðin stór :haha::haha::haha: Fæ íbúðina afhenta 1.des.  Ég verð semsagt flutt að heiman áður en ég verð þrítug ;););) Verð audda með afmælis og innflutningspartý í Jan.

Óver end át

The apartment owner


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 20:21:01 / asgebjar

Howdy everyone!

Hæ hæ!!! Þetta hefur gerst Fór til Kanarí Byrjaði að vinna í Njarðvíkurskóla Byrjaði að þjálfa íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum (NES) Byrjaði að þjálfa sund hjá UMFN Fór að hitta SMS gells (GEGGJAÐ) Fór í réttir í Víðidal Eignaðist nýjan Yaris That's it!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 13:06:49 / asgebjar

Eyðsluklóin Klóka!!!

Já það eru 3 vikur síðan ég kom heim frá Boston og vá þvílík ferð, alveg hreint mögnuð.  Sjaldan verslað jafn mikið.  Alveg hreint æði, þetta var eitthvað fyrir verslunarsjúku mig en öllu má ofgera og eftir viku var ég alveg komin með nóg af því að versla.

Síðustu helgi voru Færeyskir dagar á Ólafsvík og hún Hafdís Bygja klikkar ekki á hlutunum ;) (Það er sko mamma hennar Írisar vinkonu)  Gítarpartýið var algjör snilld, Traustur vinur spilaður fram og til baka af honum Magga sem syngur það upphaflega, Íris er svo góður stjórnandi og þá kom risið og svo aukinn hraðinn og allt í lukkunar velstandi.

Nú er sundnámskeiðið búið hjá mér og þá er það bara pulsuvagninn á hverjum degi, ætla reyndar að reyna að fá mér smá frí til þess að fara með Önnu Fíu í smá ferðalag um suðurlandið :haha: :haha::haha:  Þarf einnig að finna helgi til þess að fara vestur og skoða villuna hennar Sirrýar.  Jebbs svo er það Kanarí 1.ágúst.  Alveg nóg að gera.

Óver end át.


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 09:40:58 / asgebjar

Hann á afmmæl'í dag.....

Elskulegur bróðir minn og jafnframt besti bróðir minn á afmæli í dag, tventí sev7n, blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja endilega gefa honum eitthvað er bent á ameríkusjóð bestu systur hans :haha::haha::haha:

Jebb og sumarið komið og styttist óðum í Ameríkuferð mína. Rúmar 2 vikur... en brjálað að gera þangað til....

Adios


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 08:22:18 / asgebjar

Páskar...

Gleðilega páska frá Noregi!!!! Kem heim á morgun!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 10:05:36 / asgebjar

FRÍ

Jamm þyrnirós er sko búin að sofa helling, ekki alveg heila öld, kanski svona 1/3!!!! Er að fara að hitta Óla og Pálmar í dag. Skýin eru frekar lág þannig að það verður takmarkað útsýni frá Holmenkollen ( ca. skrifað svona);) Jæja pípols. Meiri fréttir næst, já og búin að vera róleg í innkaupum, so far eru það bara sokkar og sjampó ;) Heyrumst

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 21:29:45 / asgebjar

Heja Norge

Komin til Noregs!!!!!! GEGGJAÐ

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 22:12:57 / asgebjar

Hörðust!!!

Jamm og jæja kæru lesendur.  Síðastliðinn þriðjudag var kveðjukvöldverður hjá 10.bekk og kennurum, komst reyndar ekki því að ég var að þjálfa og fór svo á aðalfund hjá sunddeild UMFN.  10.bekkingar gefa kennurum sínum ýmsar tilnefningar og kennararnir semja lag um nemendurna.  Nú þetta væri ekki frásögufærandi nema fyrir það að við Eyþór vorum tilnefnd!!!;););)  Eyþór þurfti að deila titilinum kynþokkafyllsti kennarinn með 2 öðrum ungum kennurum og ég var valin harðasti kennarinn, tel ég það vera mjög svo eftirsóttan titil :haha::haha::haha: Nú eins og ég hef áður greint frá þá gáfu krakkarnir mér nafnið Járngerður og eru kennararnir farnir að kalla mig Járnfrúnna, hei hvað með greyið Margaret Thacher :haha:  Nú það er komið á hreint að ég er að fara til Kanarí í ágúst í 2 vikur, vúhúúúúúú!  Þannig að það er allt bara frábært!!! Nema að ég gæti sofið í heila viku, sem ég ætla að gera í Osló, eða svona ca. 10 tíma á hverri nóttu :haha::haha:

Þar til næst

Járnfrúin


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:15:19 / asgebjar

pulsur, pulsur, pulsur

Já mætti bjóða þér pulsu??? Með hverju viltu??? Já ég var að vinna alla helgina að afgreiða pulsur, hamborgara, franskar og margt fleira. Alls kyns fólk mætir svangt á svæðið og pantar sér eitthvert góðgæti sem ég og samstarfsstúlkur afgreiðum af mestu snilld (þess má geta að þær sem ég vinn oftast með eru bestu vinkonur mínar), einstaka sinnum kemur einn geðsjúklingur og heimtar einn sterkan hamborgara, við reynum af okkar bestu getu að gera borgarann sem sterkastann (sem sagt óætan). Við vinkonurnar fáum alveg grænar bólur þegar kallinn mætir á svæðið, því stundum fylgir sú saga að konan hans hafi reynt að drepa hann og því skulum við gera okkar besta að reyna það líka með sterkum borgara... ef hann fer ekki að hætta að bögga okkur gæti ég freystast til þess að óvart fleigja í hann hníf, obbosí!!!  Já með því að umgangast geðveikt fólk gæti maður fengið snert af stundarbrjálæði :klikk::klikk::klikk:  En sem betur fer kemur þessi sjúki maður ekki á hverju kvöldi.  Við erum farnar að gera borgarann hans vélrænt og fleigjum í hann, það er t.d. búið að fleigja manninum út af öðrum stöðum í bænum.  Við sem sagt afgreiðum alla, þjónum öllum.

Mér var tjáð það fyrr í kvöld að ég hefði erft þann "eftirsóknaverða" eiginleika að vera vinnualki frá foreldrum mínum, því miður held ég að ég hafi fengið stærri skerf en bróðir minn, ja svona er þetta misskipt, allt meira hjá mér, skemmtilegri, sætari og já bara allt :haha::haha::haha: Einar Birgir er samt vænsta grey ;););)

Eina með öllu nema hráum,steiktum og remúlaði :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 22:31:10 / asgebjar

Hjálp!!!

Ken jú belíf it.  Ég á takk fyrir túkall 15 ára fermingarafmæli í ár.  En ég hélt að ég væri sko 18 ára í mesta lagi 22.ja, dí (eins og Anna vinkona segir).  Hef sem betur fer ekki stórar áhyggjur af því, enda finnst nemendum mínum (flestum) ég vera algjör táningur.  :haha::haha::haha:  Nú það er allt að verða vitlaust...eða þannig lagað... fólk að fjölga mannkyninu og að versla eða að byggja íbúðarhúsnæði..... NEMA ÉG!!!  Ég hugga mig bara við Osló og Boston, 2 stórglæsilegar borgir sem taka á móti mér fagnandi, jú og vonandi litlu sætu frændur mínir 2.  Var á árshátíð hjá Reykjanesbæ á laugardaginn og þar voru rúmlega 400 manns og komust færri að en vildu.  Alveg hreint mögnuð skemmtiatriði, Örn Árna, Páll Óskar og svo við kennararnir í Holtaskóla, við vorum alveg mögnuð, ímyndið ykkur karlmenn á korsilett og fáklæddar konur, já þú gast það gestur góður, þeminn var ROCKY HORROR ;););)meira svona  :klikk::klikk::klikk:  Nú ég ætla að kíkja á laugarvatn næstu helgi með sundinnrás, er að fara með krakkana í æfingabúðir.  Kæru Laugarvatnsbúar læsið hurðum... nei ég meina skiljið eftir opið og ég kíki kanski í heimsókn!!!

Trilltur transi

PS. það eru nýjar myndir m.a. frá Þorrablótinu á Laugarvatni og fl.


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 19:22:36 / asgebjar

Long time no blog...

Já allt og ekkert hefur gerst frá því að ég bloggaði síðast... brilliant þorrablót á Laugarvatni og brilliant sumarbústaðarferð á Kirkjuhóli.  Nú ég er líklegast að fara 3 sinnum til útlanda á þessu ári :haha::haha::haha: víííííííí Byrja á því að fara til Noregs um páskana, verð í viku og ætla að heimsækja merkilega fjölskyldu í Osló, Harpa &co, jei hvað ég hlakka til það verður geggjað, kanski djammað ;) ó boj ó boj ó boj.  Nú síðan er það Bostonferðin mín sem ég hef beðið með óþreyju í langan tíma og dadaradada svo fer ég kanski í 2 vikur til Kanarí í ágúst. Sjibbíííííí.  Ég vona að þið lesendur góðir samgleðjist mér :haha::haha::haha: Hvernig er annað hægt, svona yndisleg mannvera eins og ég er og á allt gott skilið!  Jamm sem sagt allt í gúddí á suðvesturhorninu...

la la la la la ferðalag!!!

:haha::haha::haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 23:45:07 / asgebjar

KLUKK!

Anna Esssssss klukkaði mig...

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina:  Kirkjugarðarnir í Keflavík, þrífa flugvélar, Landsbankinn í Leifsstöð og kenna íþróttir í Holtaskóla

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Forest Gump, Stella í Orlofi, Bridget Jones's diary og Love Actually :haha:

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Keflavík, Reykjanesbær (já nafninu var sko breytt úr Keflavík í Reykjanesbær og ég hef búið á báðum stöðum) ;) Laugarvatn og Carthage í USA.

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Friends, Sex & the city, Prison brake og CSI 0

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Algarve, Miami, Boston og Philadelphia og margir margir fleiri. 

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíðurnar):
.
vf.is, visir.is, mbl.is, mentor.is,

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
Jólamaturinn hennar mömmu, mexícóskt lasagna, kjúklingabringur og kjúklingasalat á la Duus og Langbest.

4 bækur sem ég les oft..... í:
Hmmmmm kanski draumaráðningabók annars ekki mikið að kíkja í bækur núna, aðeins í Þjálfun, Heilsa og Vellíðan.

Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:

Ameríka, sólarströnd, Laugarvatn og Ástralíu (það er sumar þar núna) :haha:

4 strákar sem ég skora á að gera þetta eru:
Tja.... Allir strákar sem lesa þetta.

4 stelpur sem ég skora á að gera þetta eru:
Stella Rún, Harpa og Soffía, Arna Björk og Brynja Sif.

Takk Takk


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4